Stjörnu spjallið
Allt sem þig langar til að vita um stjörnuspeki en þorðir ekki að spyrja um.
Stjörnuspeki, dulspeki, Human Design, skemmtilegir viðmælendur og spjall um allt á milli himins og jarðar, bókstaflega, með Jöru Gian Töru, stjörnuspekingi.
Stjörnu spjallið
Hvað er stjörnuspeki og hvernig getum við notað hana til að skilja okkur sjálf? - Velkomin í stjörnuspjallið! #1
Velkomin í stjörnuspjallið!
Í fyrsta þættinum þá byrja ég að skoða hvað stjörnuspeki er - hint - hún er miklu meira en stjörnumerkið þitt og það er ekki einu sinni mikilvægasti þátturinn í stjörnukortinu þínu - og af hverju ég nota hana.
Annað sem ég tala um er:
Hvernig er hægt að nota stjörnuspeki sem tæki til að hjálpa sér á þroskabrautinni.
Hvernig stjörnuspeki getur hjálpað okkur í gegnum erfiðu tímabilin í lífinu með því að gefa þeim dýpri tilgang og auka skilning okkar á hvað sé í gangi, og fleira.
Þú mátt endilega droppa við á Instagram eða facebook og segja mér hvað þér fannst um þáttinn og hvað þig langar til að ég fjalli um í þættinum.
Ég býð upp á einkatíma, leiðsögn og námskeið í stjörnuspeki, hugleiðslu og fleiru.
Þú finnur allar upplýsingar um það á heimasíðunni minni: jaragiantara.com
Viltu vita meira um Júpiter merkið þitt? Það sem færir þér gleði?
Þú getur sótt meiri upplýsingar um það hér: Jupiter Joy! (á ensku)
Þá ferð þú líka á póstlistann minn þar sem ég sendi út upplýsingar um viðburði sem ég held og stundum eitthvað annað þegar andinn grípur mig.
Hér getur þú búið til stjörnukortið þitt: jaragiantara.com/makeyourownchart
Hér er önnur frábær stjörnuspeki síða: astro.com
Komdu líka endilega og heilsaðu upp á mig á samfélagsmiðlunum mínum!
Instagram: @jaragiantara
Facebook: facebook.com/jaragiantara
TikTok: @jaragiantara
Twitter: twitter.com/jaragiantara